571-9300 datatech@datatech.is Suðurlandsbraut 52 10:00-18:00 virka daga og 11:00-15:00 laugardaga

AFHVERJU ÆTTIR ÞÚ AÐ VELJA DATATECH?

Datatech býr yfir sérhæfðum tæknibúnaði og þekkingu til að klára málin á Íslandi

Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur verið starfandi í faginu í yfir 12 ár og býr yfir sérhæfðum tæknibúnaði og þekkingu til að klára málin á Íslandi. Veldu trausta aðila með þekkingu og reynslu í faginu til þess að enduheimta gögnin þin.

Harðir diskar og aðrar gagnageymslur eru mjög viðkvæm tæki og sérstaklega eftir að þeir hafa bilað og því er alltaf öruggara að velja gagnabjörgunar þjónustu innanlands þar sem póstsendingar verða alltaf fyrir miklu hnjaski á ferðalagi sínu og einnig áhætta á því að pakkar einfaldlega týnist eða skemmist.

Þjónustuframboð

Hvað getum við

Gert fyrir þig?

Okkar markmið er að veita þér framúrskarandi þjónustu

Gagnabjörgun af Hörðum Diskum

Unnt er að bjarga gögnum af öllum gerðum harðra diska, óháð stýrikerfi. Gagnabjörgunarverkefnum höfum við skipt upp í þrjá flokka eftir því hversu mikið þarf að gera til þess að bjarga gögnum.

Gagnabjörgun af SSD diskum

Við björgum gögnum af SSD (Solid State Drive) diskum. SATA SSD, NVMe SSD diskum, M.2 SSD diskum og PCIe SSD diskum. Við búum yfir sérhæfðum búnaði til þess að afrita gögn beint af Nand /Flash kubbunum sem liggja á PCB plötum SSD diska.

Gagnabjörgun af Minniskortum

Við getum bjargað gögnum af biluðum eða dauðum SD, SDHC, SDXC , Micro SD, Micro SDHC, xD, og compact flash minniskortum / myndavélakortum. Einnig eftir að búið er að formata kortið óvart eða eyða gögnunum.

Gagnabjörgun af Snjallsímum


Við getum bjargað gögnum af öllum gerðum af snjallsímum.
Apple, Samsung, Huawei, Nokia, Sony, LG, HTC o.fl. Hvort sem þeir virka, eru með brotna skjái eða skemmdir á annan hátt.

Gagnabjörgun af Diska Stæðum

Við búum yfir sérhæfðum tækjabúnaði til þess að bjarga gögnum af RAID stæðum. Hægt er að framkvæma RAID gagnabjörgun þegar skráargeiri (e.partition) af RAID stæðunni kemur ekki fram í Windows eða Disk utility í MAC OS og einnig þegar t.d. 2 diskar eru bilaðir í RAID stæðu eða jafnvel fleiri.

Gagnabjörgun af USB Kubbum

Við björgum gögnum af öllum gerðum af USB minniskubbum hvort sem þú hefur eytt gögnum eða kubburinn er dauður eða kemur ekki fram í stýrikerfi

Aflæsing á Android Snjallsímum

Við getum aðstoðað við að opna Android snjallsíma ef PIN hefur gleymst. Þetta fer þó eftir tegund síma og hvaða útgáfu stýrikerfis á þeim. Við getum ekki aflæst iPHone símum eins og er en það verður mögulega hægt í nákominni framtíð.

Stafrænar Rannsóknir

Við tökum að okkur ýmiskonar stafrænar rannsóknir. (e. Digital Forensics)

TÖLFRÆÐI

Okkar helstu Lykiltölur

91

Endur heimtingar hlutfall

4400

Ánægðir viðskiptavinir

12

Ára Reynsla

HVAÐ ER AÐ FRÉTTA?

Fræðsla og blog

Spurt og  Svarað

Svör við algengustu spurningunum um Gagnabjörgun

Við byrjum alltaf á því bilanagreina búnaðinn og sendum svo nákvæma skýrslu með tölvupósti sem skýrir frá áætlaðri niðurstöðu, hvað við áætlum langan tíma í verkefnið, hversu stóru hlutfalli af gögnum við áætlum að hægt sé að bjarga. Ásamt föstu verðtilboði í gagnabjörgun sem sýnir heildarkostnað við gagnabjörgun, sundurliðun á mögulegu varahlutaverði, verð á nýjum diskum undir gögn og hvort það sé farið fram á innborgun inn á málið. Þú svo annaðhvort samþykkir eða hafnar tilboðinu. Sé tilboði hafnað innheimtum við 11.900 kr greiningargjald fyrir hvern hlut sem komið er með í bilanagreiningu.

Erfitt er að segja til um kostnað við gagnabjörgun fyrir fram. Til eru óendanlega margar gerðir af mismunandi gagnageymslum og þær mis erfiðar viðureignar. Við byrjum alltaf á bilanagreiningu á búnaðinum, skoðum hvað þarf að gera og hvort við höfum fengið sambærileg mál til að geta áætlað tíma. Skoðum hvaða aðferð þarf að beita og hvort sé þörf á varahlutum og ef svo er þá hvað þeir kosta. Eftir þessa skoðun færðu senda skýrslu og fast tilboð í gagnabjörgun sem sýnir kostnað ef málið heppnast og einnig lágmarkskostnað ef t.d. ekki er hægt að bjarga gögnunum sem er mjög sjaldgæft eða undir 10% tilfella.

Eftir að vinnu við gagnabjörgun er lokið færðu sendan skráa lista á .html sniði sem sýnir öll þau gögn sem hægt var að bjarga og hægt er að skoða í hvaða vafra sem er. Gögnin eru afhent ýmist á nýjum flökkurum sem þú getur valið að kaupa hjá okkur eða komið með þinn eiginn eða við sendum gögnin rafrænt ef um lítið gagnamagn er að ræða (undir 100GB)

Það er mjög misjafnt hvað vinna við gagnabjörgun tekur langan tíma og fer eftir hversu flókið málið er. Þegar við t.d. fáum harða diska sem eru með mjög slitið segulyfirborð þarf að lesa mjög varlega af þeim á mun hægari hraða en þeir eru upphaflega hannaðir fyrir. Þegar þú færð skýrsluna senda eftir bilanagreiningu kemur fram í henni tímaáætlun. Þá spilar einnig inn í hvort þurfi að kaupa varahluti erlendis frá og hvort þurfi að bíða lengi eftir þeim.

Pantaðu Símtal

Ertu með einhverjar spurningar? Skildu eftir skilaboð og við höfum samband við þig strax í dag!

    Hefur verið bætt í körfuna Skoða körfu